{"product_id":"ast-i-meinum-sogur-um-forbodna-ast-eftir-barboru-cartland","title":"Ást í meinum: Sögur um forboðna ást eftir Barböru Cartland","description":"\u003cp\u003eLangar þig til þess að heyra sögur um forboðnar ástir? Þessar sögur eftir Barböru Cartland fjalla um ást í meinum, ást sem kviknar þegar manneskjur eru lofaðar öðrum en tilfinningarnar taka völdin.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLafði Vesta Cressintonfont ferðast til eyjunnar Katona til þess að giftast Alexander prins í bókinni Á valdi ástarinnar. Þar tekur Count Miklos Czakó á móti henni og vekur með henni tilfinningar sem hún vissi ekki að byggju innan með henni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ bókinni Vængir ástarinnar verður Amanda Burke, dóttir fátæks prests, á vegi Ramsay lávarðs sem hrífst strax af henni og ákveður að giftast henni. Það sama kvöld gerist nokkuð sem snýr lífi hennar á hvolf og hún neyðist til að játast Ramsay til þess að geta bjargað manninum sem hún elskar í raun og veru.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMarkgreifinn af Weybourne fær það hlutverk að fylgja guðdóttur drottningarinnar til brúðkaups síns í bókinni Brúður gegn vilja sínum. Á ferðalagi þeirra bjargar hann þeim frá hópi ræningja og verður einnig ljóst að hann ætti einnig að bjarga henni frá hjónabandi með furstanum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ hafróti ástríðna er Sylvia ráðin sem barnfóstra á herragarði Roberts. Þar hvíla dimmir skuggar og leyndarmál sem valda því að Robert býr til óyfirstíganlega veggi á milli hans á Sylviu, þrátt fyrir að þau elski hvort annað.\u003c\/p\u003e","brand":"None","offers":[{"title":"Livre numérique Kobo","offer_id":46808608669906,"sku":"7f0a13c1-8ee0-3895-aebb-339b9fef5999","price":16.99,"currency_code":"CAD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0655\/8980\/5233\/files\/image_f1a4e1d5-5b1b-4b0b-9f82-e18d914aca84.jpg?v=1774306963","url":"https:\/\/www.indigo.ca\/fr\/products\/ast-i-meinum-sogur-um-forbodna-ast-eftir-barboru-cartland","provider":"Indigo","version":"1.0","type":"link"}